Safamýrarskóli er sérskóli á grunnskólastigi sem þjónar öllu landinu. Hann tók til starfa árið 1982. Reykjavíkurborg annast rekstur skólans og flestir nemendur skólans eru búsettir í Reykjavík. Skólagöngu nemenda sem búsettir eru utan Reykjavíkur fjármagna heimasveitarfélög nemendanna. Eitt af hlutverkum skólans er að veita starfsfólki annarra grunnskóla ráðgjöf og kennslufræðilegan stuðning vegna nemenda sem hafa svipaðar námsþarfir og nemendur í Safamýrarskóla. Skólinn er til húsa í Safamýri 5, 108 Reykjavík, sími: 568-6262. Skólastjóri er Erla Gunnarsdóttir og aðstoðarskólastjóri er Guðrún Gunnarsdóttir. Skrifstofa skólans er opin: 8:00 - 16:00. |
|